Foreldrafélag Krummafótar

 

Foreldrafélag er starfandi við leikskólann. Markmið foreldrafélaga er að efla tengsl foreldra við starf leikskólanna og tryggja velferð barnanna sem best. Allir foreldrar/forráðamenn barna verða sjálfkrafa félagar um leið og barnið byrjar í leikskólanum.

Í stjórn foreldrafélagsins fyrir starfsárið 2023-2024  eru: Helga Margrét Freysdóttir og Olgeir Gunnarsson, Guðlaug Sigríður Tryggvadóttir og Jakob Þór Þórðarson, Alma Þorsteinsdóttir og Guðjón Ágúst Kristinsson.

 

 Lög foreldrafélags Krummafótar

 

 1. gr. Félagið heitir Foreldrafélag Krummafótar

 2. gr. Allir foreldrar/forráðamenn barna í leikskólanum eru félagar í foreldrafélaginu.

 3. gr. Tilgangur félagsins er að stuðla að velferð barna og starfsfólks í Krummafæti og styrkja samskipti foreldra/forráðamanna barnanna og starfsfólks er þar starfar.

 4. gr. Öllum félagsmönnum er frjálst að koma með tillögur til stjórnar um fræðslufundi eða upplýsingar er varða hina ýmsu þroskaþætti barna.

 5. gr. Stjórn félagsins skipa fulltrúar foreldra/forráðamanna frá þrem heimilum, þar af 1 heimili úr stjórn frá fyrra ári.

 6. gr.  Aðalfundur félagsins skal haldinn að hausti ár hvert, og skal hann boðaður með viku fyrirvara. Ef 2 eða fleiri félagsmenn óska eftir fundi er stjórninni skylt að boða til fundar.

 7. gr. Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi.

 8. gr. Gjöld félagsins skulu innheimt tvisvar á ári í apríl og október og skulu ákveðinn á aðalfundi ár hvert.

 9. gr. Sjóðinn má nota til fræðslu og skemmtunar fyrir börn og foreldra/forráðamenn.