Ævintýravika

 Í síðustu viku var ævintýravika hjá okkur. Ævintýravikan er árlega hjá okkur þá breytum við umhverfi leikskólans og gerum eitthvað nýtt og spennandi sem brýtur upp daginn. Maturinn er líka hafður með ævintýralegum blæ svo allt verði nú sem skemmtilegast. Á miðvikudeginum var svo búningadagur og hér má sjá myndir frá þeim degi.