Óvænt uppákoma í sal

Þar sem að gruknnskólinn er í fríi ákváðum við að fara með eldri börnin upp í skóla í stóra salinn eins og þau segja en þau yngstu fengu á meðan að leika sér með blöðrur í salnum okkar hérna heima. Mikið stuð og gleði var ríkjandi enda alltaf gaman að brjóta upp daginn með óvæntum og skemmtilegum atburðum.