Nemandi vikunnar: Frosti

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Læknir og lækna Þórir.

Hefur þú einhverntíman hjálpað einhverjum? Já Þóri að keyra bíl.

Hefur þú einhverntíman orðið reiður? Já af því að pabbi minn var að rífast með boltann.

Hvað gerir þig glaðan? Að brosa.

Hvort finnst þér skemmtilegra að leika úti eða inni? Af hverju? Inni, þar er ekki kalt og skemmtilegra inni.

Hvað finnst þér best að borða? Hakk og spaghetti.

Hvað gerir þú til þess að hjálpa til heima? Í playmo og leika mér.

Hvað ertu gamall? Hvenær áttu afmæli? 3 ára, 20 apríl.

Getur þú sagt mér frá einhverju í herberginu þínu? Það er fínt, ég er með bíla líka og ekkert meira.

Getur þú sagt mér brandara? Nei engan brandara.